Borgahella 9, Hafnarfjörður

Borgarhella 9, 14 iðnaðarbil - Hafnarfjörður

Verkkaupi: Eigið verkefni

Lýsing: Tveggja hæða iðnaðarhúsnæði við Borgahellu 9, selt á byggingarstigi 2 – fullgerð bygging að utan og tilbúin undir tréverk að innan.

Helstu atriði:

Lóðarfrágangur: Malbikað plan, góð niðurföll, sameiginlegar sorpgeymslur og sérmerktur afnotareitur.
Innviðir: Slípaðir, grunnaðir og málaðir veggir. Vélslípað gólf á 1. hæð, steypt og slödduð gólf á 2. hæð.
Lýsing: Iðnaðarlampar á báðum hæðum, neyðarlýsing og útgangsljós.
Hitakerfi: Lagnagrind með iðnaðarblásara, gert ráð fyrir ofnum á 2. hæð.
Baðherbergi: Upphengt klósett og vaskur frá Grohe eða sambærilegu.
Hurðir & gluggar: Bílskúrshurðir frá Vögnum og Þjónustu, útidyrahurðir frá Strúktúr. Álklæddir timburgluggar með barnalæsingu.
Handrið: Duftlakkað stál inni, heitgalvaniserað stál úti.
Loftræsing: Loftræsting á baðherbergi, túða á efri hæð.
Rafmagn: 63A þriggja fasa rafmagnstafla í hverju rými, tengd ljós og bílskúrshurðaropnari.

Byggingin er fullfrágengin að utan með staðsteypta veggi klædda smábáru. Svalir með duftlökuðu handriði (RAL 7016), útiljós og rafmagnstengi.

👉 Frekari upplýsingar fást í síma: 545-6900 eða auglýsing frá fasteignasölu hér

Verklok: Sumar 2025