UM Stéttafélagið
Traustur samstarfsaðili í mannvirkjagerð
Við hjá Stéttafélaginu ehf. sérhæfum okkur í fjölbreyttum og metnaðarfullum verkefnum á sviði nýbygginga, viðhalds fasteigna og mannvirkjagerðar sem tengjast innviðum samfélagsins. Hvort sem um er að ræða nýlagnir og endurgerð veitulagna, jarðvegsgrunna fyrir nýbyggingar, lóðafrágang eða þjónustuverkefni eins og snjómokstur, þá tryggjum við vandaða vinnu og faglegan frágang.
Við byggjum framtíðina með traustum tengslum við verkkaupa. Stærstur hluti verkefna okkar kemur í gegnum opinber útboð þar sem við vinnum fyrir veitufyrirtæki, sveitarfélög og opinberar stofnanir. Auk þess höfum við þróað eigin fjárfestingarverkefni og byggjum íbúðar- og atvinnuhúsnæði frá grunni til fullbúins mannvirkis.
Þegar þú velur Stéttafélagið ehf. ertu að velja áreiðanleika, gæði og öfluga lausn fyrir framtíðarverkefni þitt.
Hafðu samband og fáðu fagfólk með í verkið!
Stefnur Stéttafélagsins
Gæðastefna
Við hjá Stéttafélaginu leggjum áherslu á gæði í hverju einasta verkefni. Við tryggjum öryggi, fagleg samskipti og vönduð vinnubrögð sem standast kröfur viðskiptavina og verkkaupa. Okkar markmið er að skila verkum á réttum tíma, innan kostnaðaráætlunar og með hámarksárangri.
Lykiláherslur:
Ánægja viðskiptavina er í forgrunni – við hlustum og uppfyllum væntingar þeirra.
Skipulag og skilvirkni tryggir að verkefni gangi hnökralaust fyrir sig.
Stöðugar umbætur og faglegt verklag eykur gæði og skilvirkni.
Gæðastefnan er samþykkt af stjórn og endurskoðuð reglulega til að tryggja stöðuga þróun og framfarir.
Umhverfisstefna
Við hjá Stéttafélaginu tökum umhverfismál alvarlega og leggjum okkur fram um að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum í allri starfsemi okkar. Við vinnum í samræmi við ISO 14001 staðalinn og fylgjum ströngustu kröfum þegar kemur að umhverfisvernd.
Lykiláherslur:
Lágmörkun úrgangs og skynsamleg nýting hráefna og orku.
Aukning endurnýtingar og flokkun á öllum verkstöðum.
Vandað viðhald og rekstur véla til að draga úr losun og leka.
Við fylgjumst reglulega með árangri okkar og stefnum að stöðugum umbótum. Með því tryggjum við að rekstur okkar stuðli að sjálfbærri framtíð.
Öryggisstefna
Við hjá Stéttafélaginu leggjum áherslu á að tryggja öryggi og heilsu starfsmanna, verktaka og vegfarenda í öllum verkefnum okkar. Öryggismenningin er hluti af daglegu starfi og markmiðið er að allir komi heilir heim.
Lykiláherslur:
Notkun persónuhlífa og öryggisbúnaðar á öllum verkstöðum.
Starfsfólk er þjálfað í að þekkja og lágmarka áhættur.
Við stöndum við lög og reglugerðir og vinnum stöðugt að umbótum í öryggismálum.
Stéttafélagið setur árleg markmið í öryggismálum sem eru endurskoðuð og samþykkt af stjórn.