Vorbraut 13 – Fjölbýlishús í Garðabæ

Staða framkvæmdar
Innanhússfrágangur og klæðning
Í FRAMKVÆMD
8
Íbúðir
3 + kjallari
Hæðir
V268
Verknúmer
2025
Framkvæmdir hófust
2026
Áætluð verklok

UM VERKEFNIÐ

Vorbraut 13 er eigið verkefni Stéttafélagsins í Garðabæ. Um er að ræða þriggja hæða fjölbýlishús með átta íbúðum og bílakjallara.

Hönnun og undirbúningur verkefnisins hófst árið 2024. Framkvæmdir hófust árið 2025 með jarðvinnu, fyllingum og undirbúningi byggingarreitsins.

Stéttafélagið er verkkaupi verkefnisins og annast framkvæmd og verkstjórn þess í samstarfi við hönnuði, undirverktaka og birgja.

FRAMVINDA VERKS

Framkvæmdir hafa farið fram í áföngum frá jarðvinnu og uppsteypu yfir í lokun húss og frágang. Nú er unnið að innanhússfrágangi og klæðningu hússins, samhliða öðrum frágangi innan- og utanhúss.

01
Jarðvinna
Fyllingar, þjöppun og undirbúningur.
02
Undirstöður
Undirstöður og undirbúningur burðarvirkis.
03
Uppsteypa
Veggir, plötur, stigahús og burðarvirki.
04
Lokun húss
Þak, einangrun, gluggar og útihurðir.
05
Frágangur
Innanhússfrágangur og klæðning.
NÚNA
06
Lokafrágangur
Innréttingar, sameign og lóð.

HELSTU UPPLÝSINGAR

Verknúmer V268
Heimilisfang Vorbraut 13, 210 Garðabær
Verkkaupi Stéttafélagið ehf.
Tegund Fjölbýlishús
Fjöldi íbúða 8
Fjöldi hæða 3 + bílakjallari
Framkvæmdatími 2025–2026
Áætluð verklok Vetur 2026

HÖNNUN OG VERKSTJÓRN

Arkitekt
Jón Þór Þorvaldsson
Hönnunarstjóri
Jón Þór Þorvaldsson
Burðarþol
Ívar Hauksson
Vatn, hiti og frárennsli
Ívar Hauksson
Loftræsting
Ívar Hauksson
Lýsingarhönnun
Pétur Benediktsson og Davíð Eysteinn Sölvason
Raf- og fjarskiptahönnun
Davíð Eysteinn Sölvason
Byggingarstjóri
Steinar Örn Arnarson

SAMSTARFSAÐILAR

Kraftlagnir ehf.
Pípulagnir
Rafbræður ehf.
Raflagnir
Múrkompaníið ehf.
Múrverk
Héðinn
Stálvirki og I-bitar
KONE
Lyftubúnaður
Fagval
Gluggar í anddyri
TJG
Gluggar og útihurðir

GÆÐI OG ÖRYGGI

Gæðaeftirlit
Framkvæmd samkvæmt samþykktum teikningum, verklýsingum og verkferlum verkefnisins.
Verkfylgni
Regluleg eftirfylgni með framkvæmd, verkþáttum og frágangi á framkvæmdartímanum.
Öryggi
Áhersla á örugg vinnubrögð og eftirlit með öryggismálum á framkvæmdasvæðinu.
Nánari upplýsingar
Vorbraut 13 · V268
Stéttafélagið ehf.
Sími 545-6900